2011
Farið upp í veiðivötn í júlí byrjun á tveimur Fordum með hægri höndina með. Fullt af toppflugu sem fiskurinn var fullur af og ösku rok hafði gert vart við sig nokru áður ,léleg veiði í litlasjó hef ekki kinnst því áður að fáir voru að veiða þar. Fékk einn 4-5 p enn náðum fjöldanum yfir 20 í nýjavatni á tveimur tímum.
Arnarvatnheiðinn með Hilmari ,Eyþór ,Nonna og óla og ísleyfi. 23 júlí í tvo daga 10000 þ komum með 15 fiska nokkuð væna,alls milli 80-90 fiska allir saman, skelfilegur vegur um úlfsvatnið .Átti ágætar stundir við Arnavatn litla ( 5 stykki ) gerði svo norðan rok.
2 ágúst Ljótipollur 3 st með í för Hilmar og Eyþór.
3 ágúst Hafbjarnarfellsvatn með Hilmari 33 stykki milli kl: 11-15 " bara gaman " fóum svo í Hrauneyja og ég fékk mér næðing, og veiðileyfi Veiddi svo í Fellsendavatni frá 19 fram á kvöld ágæt veiði einn 1,5p annan 2p þriðji 2,5 p fjórði 3 p og fimmti og tala ekki um sjötti vart stæðstur enn slapp við bakkan eftir að ginið trosnaði 7 cm við öngulinn.
Veiðivötn 7 -8-9 ágúst veiði sagan kemur þegar ég hef farið :)
2010
Keyfti mér Veiðibíl ´26 júlí og fór með Veiðifélaganum í landmannahellir og fengum okkur veiðileifi á föstudeginum og laugardeginum ,eignig var Hilmar með mér við veiddum ágætlega og þrígengið skemmti sér rosalega vel.
Fór með Eyþóri upp í veiði vötn í júlí ,svo aftur í ágúst þá kom ráðskonan með ,þíðir ekkert minna en að vera með ráðskonu í veiðibíllnum þegar farið er svona túra,verst hún keyrir ekki enn forbílinn :) hheee
2009.
Fór í veiðivötninn tvisvar ein og venjulega ,einn í seinna skiftiuð. Eignnig fór ég með Eyþóri í eftirminnilega ferð upp í þórisvatn .Þar sem Auður gróf sig niður í sandinn á Nissa Terrano með Helga ,Gest og HilmarTorfa og fékk ferðalanga til að kippa sér upp meðan veiðifélagarnir voru að veiða hinumeginn í vatninu.komum svo við í Fellsendavatni ,fékk einn 5 punda á spún.
Sumarið 2008.
Birjuðum að fara í Veiðivötninn 13-15 júlí og rústaði ég Auði í veiðinni,fengum leiðilegan laugardag rok og rigningu annars gekk vel tók 5 á flugu á síldarplaninu snemma un morgun þann fjórtanda og einhverja titti í Nýjavatni .Veiddum þó aðalega í ónýtavatni.
Fórum dagsferð þann 28 júlí í þórisvatn og fellsendavatn ,lélegt það nema einn 5 p urruði á svartan toby í fellsendavatni seint um kvöld. Auður kollfesti jeppan í sandi og það þurfti tvo bíla til að kippa honum upp meðan við Eyþór vorum að veiða hinum meginn í vatninu.
Fórum okkar árlegu ferð með Buggu og fúsa í veiðivötn komun með 46 fiska heim ,með í för voru tveir helgar.
Djúpavatn var að klárast þann 14 ágúst og veiddist 35 stykki með elju semi og dugnaði viðstaddra,gott veður að vanda.
Fórum tvisvar í veiðivötn 2007
Fyrri ferðinn ég og Auður og gekk bara vel fín veiði.
Sinni ferðinn fórum við meðHelga okkar og Buggu Fúsa og óla það lukkaðist líka vel.
Farið var svo í Djúpavatn í sept með vinnufélögunum ,einnig var ég með mitt lið 24 ágúst og veiddi Eyþór þá 7 puna regnbogasilung.
Sumarið 2006
14-15 júlí verða Veiðivötnin prufuð þetta árið.
Hér verður gert skil á veiði ferðum mínum sumarið 2005.
Það sem af er sumri hef ég farið fjóra daga í veiði og telst það mjög lítið hjá mér ,enn vegna mikila anna við viðhalds og byggingafræmkvæmda á húsinu okkar hefur ekki gefist tími til veiða.Vona þó að ég eigi eftir að fara 1-3 sinnum á Þingvöll í ágúst og í birting í haust norður í land sem verður áræðanlega ævintýranleg ferð.(sem var blásin af :( )
Fyrst var farið í Djúpavatn með vinnu félögum í einn sólahring .Fengum æðilsegt veður og misjafna veiði ég veiddi bara murtur á fluguna enn þeir sem aðra tækni beittu uppskáru það sem alla dreymdi um að " fá hann ".
Var svo við anna mann við veiðar í Veiðivötnum hálfan-heilan-hálfan dag í S-Vestan roki .Þó gafst stund og stund að beita fluguni . Var þokkalega sáttu fékk 8 stykki frá 4,5 p og niður í fjóra titti.
Því miður var veiðifélagi minn ekki eins heppin því hann kom með " öngulin í rassinum heim " enda neta maður mikil.
Í ágúst varð ég þess aðnjótandi að fara með Gumma frænda í Vatnsdalsána síðdegis og næsta morgun, fín ferð þó seint hafi verið og leiðilegt veður.Alltaf gaman að prófa einhvað nýtt og nýja staði ,fékk eina bleikju 2 p í arnarhyl og ekki sporð meira...en það var allt í lagi.
Fór einn dag á Þingvöll með Romeo í vaxandi suðaustan átt og fékk ekkert nema ánæguna með útiverunni.
Stefni á meiri veiði næsta sumar !!!